Inter er búið að staðfesta komu Lisandro Lopez til félagsins. Hann er búinn að skrifa undir lánssamning sem rennur út næsta júní.
Inter borgar hálfa milljón evra fyrir lánið og hefur möguleika á að kaupa varnarmanninn fyrir 9 milljónir.
Inter borgar hálfa milljón evra fyrir lánið og hefur möguleika á að kaupa varnarmanninn fyrir 9 milljónir.
Lopez er 28 ára og spilar aðallega sem miðvörður. Hann á fjóra A-landsleiki að baki fyrir Argentínu en hefur aldrei tekist að festa sig almennilega í sessi í byrjunarliði Benfica, frá komu sinni til félagsins 2014.
„Við erum mjög ánægðir með að fá Lisandro Lopez til Inter. Hann er mikill sigurvegari og hefur unnið portúgölsku deildina þrisvar með Benfica," segir í yfirlýsingu frá Inter.
„Nú er kominn tími á nýtt ævintýri fyrir Lisandro. Velkominn til Inter!"
Athugasemdir