Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. janúar 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rafinha á leið frá Barca til Inter
Mynd: Getty Images
Inter Milan á Ítalíu er við það að fá sinn annan leikmann í þessu janúarglugga. Félagið er komið langt í viðræðum við Barcelona um kaup á miðjumanninum Rafinha.

Piero Ausilio, yfirmaður knattspyrnumála hjá Inter er þessa stundina í Katalóníu að ræða við Börsunga.

Rafinha hefur átt í vandræðum með að brjóta sér leið inn í byrjunarlið Barcelona eftir að komist í gegnum alvarleg meiðsli. Koma Philippe Coutinho Katalóníustórveldisins mun alls ekki auka möguleika Rafinha að komast inn í liðið.

Barcelona mun lána Rafinha til Inter út þessa leiktíð og fær Inter möguleika á því að kaupa hann næsta sumar.

Rafinha verður eins og áður segir annar leikmaðurinn sem Inter fær í þessum glugga en áður hafði félagið samið við argentíska markvörðinn Lisandro Lopez sem kom frá Benfica.
Athugasemdir
banner