„Þetta mót er frábært. Það er hægt að hæla Fótbolta.net fyrir uppsetningu á þessu móti," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, eftir 2-0 tap gegn Stjörnunni í kvöld.
Jóhannes Karl var ráðinn þjálfari ÍA eftir síðasta tímabil. Hann segist vera stoltur að hafa fengið starfið.
„Þetta er frábært tækifæri mig og ég er mjög þakklátur að hafa fengið það," sagði hann.
„Við ætlum okkur stóra hluti, við ætlum upp og við ætlum að vera klárir þegar við komumst upp til þess að vera áfram í deild þeirra bestu, þar vill Skaginn vera."
Jói Kalli er uppalinn Skagamaður og býr í bænum.
„Ég hef alltaf búið á Skaganum, nema þegar ég hef búið erlendis. Ég er á Skaganum og mín fjölskylda er þar. Minn tími fer í það frá morgni til kvölds að vera þjálfari hjá ÍA og mér finnst það frábærlega skemmtilegt," sagði þessi efnilegi þjálfari.
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir