Phil Brown hefur verið rekinn frá Southend sem situr einu stigi frá fallsæti í League One á Englandi.
Brown tók við Southend snemma árs 2013 og kom liðinu upp úr League Two í gegnum umspil tveimur árum síðar.
Southend var einu stigi frá umspilssæti til að komast upp í Championship-deildina á síðasta tímabili en gengi liðsins er mun verra núna á þessu tímabili..
Eins og áður segir er liðið aðeins einu stigi frá fallsæti en sjö af síðustu átta leikjum hafa tapast.
Phil Brown hélt fræga hálfleiksræðu í leik gegn Manchester City árið 2008 þegar hann var við stjórnvölinn hjá Hull þar sem hann las yfir hausamótunum á sínum mönnum.
Hér að neðan er myndband af því.
That Arsenal performance warrants a classic half time Phil Brown bollocking.
— Eddie (@eddie_bradbury) August 27, 2017
https://t.co/SLMR5TLnc3
Athugasemdir