Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 18. janúar 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Neymar gagnrýndur - Vildi ekki gefa Cavani séns á meti
Neymar og Cavani.
Neymar og Cavani.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn PSG bauluðu á Neymar í 8-0 bursti liðsins gegn Dijon í frönsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Edinson Cavani jafnaði í leiknum markamet Zlatan Ibrahimovic hjá PSG með því að skora sitt 156. mark fyrir félagið.

Neymar skoraði þrennu en stuðningsmenn félagsins voru ósáttir við að sjá hann taka vítaspyrnu í síðari hálfleik.

Neymar var þá kominn með þrennu og Cavani hefði átt möguleika á að slá markamet PSG ef hann hefði fengið að fara á punktinn. Neymar tók hins vegar vítið og skoraði en fékk í staðinn baul og skammir frá stuðningsmönnum PSG.

„Ég held að Neymar hafi tekið vítið því að þetta var líka góður dagur fyrir hann. Við erum ánægðir með þetta. Það verða mörg tækifæri í viðbót fyrir Cavani að skora fleiri mörk," sagði Unai Emery, þjálfari PSG, um málið.
Athugasemdir
banner
banner
banner