Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. janúar 2018 22:16
Ívan Guðjón Baldursson
Sky og Di Marzio: Chelsea vill Dzeko með Emerson
Dzeko hefur verið iðinn við markaskorun hjá Roma.
Dzeko hefur verið iðinn við markaskorun hjá Roma.
Mynd: Getty Images
Chelsea er á höttunum eftir Emerson Palmieri bakverði AS Roma og vantar einnig sóknarmann.

Gianluca Di Marzio og Sky á Ítalíu halda því fram að Chelsea sé í viðræðum við Roma um að kaupa Emerson og Edin Dzeko.

Di Marzio segir Chelsea hafa boðið 50 milljónir evra auk Michi Batshuayi á láni en Roma vill fá 65 milljónir.

Chelsea reyndi að fá Andy Carroll frá West Ham en hætti við eftir að ökklameiðsli framherjans voru staðfest. Hann verður frá í minnst fjórar vikur, líklega lengur.

„Emerson myndi vilja spila í úrvalsdeildinni og það væri draumur fyrir hann að spila undir stjórn Conte," sagði Fernando Garcia, umboðsmaður Emerson.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner