Leganes 0 - 1 Real Madrid
0-1 Marco Asensio ('90)
0-1 Marco Asensio ('90)
Gengi Real Madrid hefur verið skelfilegt á tímabilinu og eru stuðningsmenn félagsins óánægðir. Þeir létu vel í sér heyra í kvöld er Real voru heppnir að fara heim með sigurinn.
Real heimsótti Leganes í spænska bikarnum og tefldi fram varaliði. Borya Mayoral var fremsti maður, með Marco Asensio og Lucas Vazquez á köntunum.
Leikurinn var afar tíðindalítill og virtist allt stefna í markalaust jafntefli þar til undir lokin, þegar Asensio skoraði frábært mark eftir fyrirgjöf frá Theo Hernandez.
Liðin mætast aftur næsta miðvikudag og fer sigurvegarinn í undanúrslit.
Athugasemdir