Ipswich Town hefur fengið miðvörðinn Cameron Carter-Vickers á láni frá Tottenham út tímabilið.
Hinn tvítugi Carter-Vickers var nýlega kallaður til baka úr láni hjá Sheffield United þar sem hann hafði spilað 17 leiki í byrjunarliði.
Carter-Vickers er nú kominn í annað félag í Championship deildinni.

Carter-Vickers er bandarískur landsliðsmaður en hann á fjóra leiki að baki með Tottenham á ferlinum.
Í sumar ákvað Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, að lána Carter-Vickers eftir að miðverðirnir Davinson Sanchez og Juan Foyth komu til Spurs.
Athugasemdir