Pierre-Emerick Aubameyang verður væntanlega ekki leikmaður Borussia Dortmund mikið lengur.
Aubameyang var ekki í leikmannahópi Dortmund gegn Hertha Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi en á sama tíma og leikurinn var náðist mynd af honum í fótbolta með vinum sínum.
Aubameyang hefur nú ekki leikið síðustu tvo leiki Dortmund, en hann tók út agabann eftir að hafa misst af liðsfundi í síðustu viku. Dortmund gerði þá markalaust jafntefli gegn Wolfsburg en þetta var þriðja agabann leikmannsins á rétt rúmu ári.
Dortmund gerði einnig jafntefli gegn Hertha í gær en ástæðan fyrir því að Aubameyang spilaði ekki í gær að sögn Michael Zorc, íþróttastjóra Dortmund, var sú að hann var ekki einbeittur.

Á meðan liðsfélagarnir gerðu jafntefli í Berlín var Aubameyang að leika listir sínar í fimm manna bolta með sínum í Dortmund eins og sjá má á myndinni hér að neðan.
Talið er að Gabonmaðurinn sé að fara til Arsenal, en þar kemur hann til með að fylla skarð Alexis Sanchez.
Pierre-Emerick Aubameyang went and played 5-a-side in Dortmund tonight with his mates...while his team-mates were playing away at Hertha Berlin in the Bundesliga. Hmm. With an Ousmane Dembélé shirt on. Hmm. [📸BILD] pic.twitter.com/s8U12iAIHd
— Archie Rhind-Tutt (@archiert1) January 19, 2018
Athugasemdir