Tveir leikir voru spilaðir í A-riðli Reykjavíkurmóts kvenna í kvöld.
Fyrri leikur dagsins var á milli Fjölnis og Fylkis í Egilshöllinni. Fylkir fór með 4-1 sigur af hólmi þar sem Margrét Björg Ástvaldsdóttir skoraði þrennu.
Í seinni leik dagsins vann KR öruggan 3-0 sigur á ÍR. KR er með fullt hús stiga eftir tvo leiki í mótinu.
Báðir leikirnir fóru fram í Egilshöllinni.
Reykjavíkurmót kvenna - A riðill
Fjölnir 1-4 Fylkir
0-1 Margrét Björg Ástvaldsdóttir ('37)
1-1 Rósa Pálsdóttir ('50)
1-2 Hulda Sigurðardóttir ('55)
1-3 Margrét Björg Ástvaldsdóttir ('61)
1-4 Margrét Björg Ástvaldsdóttir ('81)
KR 3-0 ÍR
1-0 Þórunn Helga Jónsdóttir ('41)
2-0 Betsy Hassett ('61)
3-0 Katrín Ómarsdóttir ('68)
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir