Alexis Sanchez er mættur á æfingasvæði Manchester United þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá félaginu. Hann var í bíl sem keyrði inn á Carrington, æfingasvæði United, fyrir nokkrum mínútum, en mynd náðist af honum.
Sanchez flaug til Manchester í dag en félagaskipti hans til Man Utd eru við það að ganga í gegn.
Sanchez flaug til Manchester í dag en félagaskipti hans til Man Utd eru við það að ganga í gegn.
Henrikh Mkhitaryan mun fara í hina áttina en um er að ræða slétt skipti á leikmönnunum, hvorugt félag borgar kaupverð.
Það er ekki víst að félagaskiptin verði staðfest í dag. Það er líklegra að þau verði tilkynnt einhvern tímann á morgun.
Hér að neðan eru myndir sem sýna Sanchez í bíl sem keyrði inn við æfingasvæði Manchester United.
It’s one of the Van Persie at United for the first time moments. Genuinely can’t believe we are actually signing Alexis Sanchez. It’s not even gonna sink in when he’s wearing the shirt! #mufc pic.twitter.com/NT44QPfQG5
— Hesham Bilal-Hafiz (@hesham786) January 21, 2018
#Alexis #Sanchez arriving at Carrington for his medical #ManchesterUnited #Arsenal #AlexisSanchez pic.twitter.com/ZMFVgTntSH
— Ben Allen (@__benallen) January 21, 2018
Athugasemdir