Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 21. janúar 2018 18:43
Ívan Guðjón Baldursson
Pochettino: Kane hefði getað gert sigurmark
Mynd: Getty Images
Tottenham gerði 1-1 jafntefli við Southampton í enska boltanum í dag og var Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, ekki sáttur með sína menn.

Harry Kane gerði eina mark Tottenham sem er í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar. Southampton er í fallsæti, einu stigi frá öruggu sæti.

„Mér fannst þetta jafn leikur og vallaraðstæður voru erfiðar. Bæði lið sýndu mikla baráttu og áttu skilið að taka stig með heim," sagði Pochettino að leikslokum.

„Það eru okkar mistök að hafa ekki unnið leikinn, Harry Kane hefði getað gert sigurmark undir lokin. Ég er ekki ánægður með frammistöðuna. Við vorum alltof lengi á boltanum og gerðum skelfilega mikið af mistökum."

Næsti leikur Tottenham er gegn Manchester United á Wembley á meðan Southampton fær Brighton í heimsókn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner