Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. janúar 2018 19:12
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Hannover náði að jafna gegn Schalke
Mynd: Getty Images
Schalke 1 - 1 Hannover
1-0 Marko Pjaca ('16)
1-1 Niclas Fullkrug ('86)

Marko Pjaca sem er nýkominn til Schalke á láni frá Juventus gerði fyrsta mark leiksins er Hannover kíkti í heimsókn.

Leikurinn var frekar tíðindalítill og voru gestirnir talsvert hættulegri og áttu skilið að jafna undir lokin.

Niclas Fullkrug skoraði jöfnunarmarkið eftir fyrirgjöf frá vinstri kanti.

Schalke er í þriðja sæti deildarinnar, sextán stigum frá toppliði Bayern. Hannover er um miðja deild, þremur stigum frá evrópubaráttunni.
Athugasemdir
banner
banner