Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. janúar 2018 12:05
Elvar Geir Magnússon
Mkhitaryan hélt upp á afmælið með Pogba og Raiola
Gaman að eiga afmæli.
Gaman að eiga afmæli.
Mynd: Instagram
Henrikh Mkhitaryan, verðandi leikmaður Arsenal, hélt upp á 29 ára afmæli sitt í gær. Með honum var umboðsmaðurinn hans umdeildi, Mino Raiola, og liðsfélaginn Paul Pogba hjá Manchester United.

„Hvað mun ég fá í afmælisgjöf??" skrifaði Pogba við mynd af þeim félögum á Instagram. Margir fylgjendur hans svöruðu því að hann fengi samning hjá Arsenal.

Mkhitaryan fékk stóra köku og var allur hinn glaðasti.

Það er bara tímaspursmál hvenær Mkhitaryan verður kynntur sem nýr leikmaður Arsenal og Alexis Sanchez mun skrifa undir hjá Manchester United. Ljóst er að Sanchez mun fá treyju númer sjö hjá United.

Sanchez verður löglegur með Manchester United í Meistaradeildinni þar sem liðið mun mæta Sevilla í 16-liða úrslitum, þar sem hann hefur aðeins leikið með Arsenal í Evrópudeildinni.
Athugasemdir
banner
banner