Hörður Björgvin Magnússon hefur verið að gera góða hluti hjá Bristol City í Championship deildinni.
Hörður er búinn að vinna sér inn byrjunarliðssæti í stöðu vinstri bakvarðar er liðið berst um umspilssæti til að komast í úrvalsdeildina.
Hörður er búinn að vinna sér inn byrjunarliðssæti í stöðu vinstri bakvarðar er liðið berst um umspilssæti til að komast í úrvalsdeildina.
Bristol mætir Manchester City í undanúrslitum deildabikarsins og er líklegt að Hörður verði á sínum stað í byrjunarliðinu.
Stuðningsmenn Bristol eru ánægðir með gengi sinna manna og kunna að meta framlag Harðar, eins og heyrist vel í myndbandinu hér fyrir neðan.
Here’s to you @HordurM34 #BristolCity pic.twitter.com/VION00fBGL
— The Parkenders (@ForzaRevolution) December 20, 2017
Athugasemdir