Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. janúar 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Barton: 50% fótboltamanna veðja á leiki
Mynd: Getty Images
Joey Barton segir að helmingur atvinnumanna í fótbolta veðji á fótboltaleiki.

Barton var dæmdur í eins og hálfs árs keppnisbann í apríl í fyrra eftir að hafa brotið reglur um veðmál. Bannið var síðan stytt niður í þrettán mánuði.

Atvinnumenn á Englandi mega ekki veðja á fótboltaleiki en Barton var fundinn sekur um að hafa veðjað á 1260 leiki á tíu ára tímabili.

„Ég held að helmingur leikmanna í deildinni myndi detta út ef allir sem hafa veðjað á leiki myndu finnast," sagði Barton.

„Ég held að 50% af leikmönnunum hefðu verið dæmdir í bann því að þetta er í menningunni hjá leikmönnum."
Athugasemdir
banner
banner
banner