þri 23. janúar 2018 17:15
Magnús Már Einarsson
Fabregas og Morata ekki með gegn Arsenal
Alvaro Morata.
Alvaro Morata.
Mynd: Getty Images
Chelsea verður án Alvaro Morata og Cesc Fabregas í síðari leiknum gegn Arsenal í undanúrslitum enska deildabikarsins annað kvöld.

Morata er að glíma við meiðsli á baki á meðan Fabregas er meiddur aftan í læri.

Báðir voru þeir fjarri góðu gamni í 4-0 sigrinum á Brighton um helgina en Morata tók út leikbann í þeim leik.

Óvíst er hvort Thibaut Courtois og Danny Drinkwater verði með en þeir voru fjarri góðu gamni gegn Brighton vegna meiðsla. Þá meiddist danski varnarmaðurinn Andreas Christensen gegn Brighton og óvíst er hvort hann spili annað kvöld.

Fyrri leikur Chelsea og Arsenal endaði með markalausu jafntefli og það er því allt undir þegar liðin mætast á Emirates leikvanginum annað kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner