Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 24. janúar 2018 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stuðningsmenn Liverpool ósáttir með miðaverð
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Liverpool eru ósáttir með miðaverð á leik Porto og Liverpool í Portúgal í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Stuðningsmenn Liverpool þurfa að borga 75 evrur (9500 íslenskar krónur) fyrir miða á leikinn.

Sama verð er fyrir stuðningsmenn Porto og aðra, en þeir sem eru skráðir meðlimir hjá Porto fá góðan afslátt. Þeir þurfa einungis að borga 25 evrur (3100 krónur) fyrir miðann.

Talið er að flestir þeir sem munu mæta fyrir hönd Porto á leikinn séu skráðir meðlimir hjá félaginu.

Hjá Liverpool eru menn ekki sáttir með þetta og hafa haft samband við UEFA í von um að málið verði skoðað frekar.

Fyrri leikur Porto og Liverpool í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fer fram þann 14. febrúar næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner