Það var Fanndís Friðriksdóttir sem skoraði mark Íslands í 2-1 tapinu gegn Noregi á La Manga á Spáni í dag.
Fanndís kom Íslandi yfir eftir þrjár mínútur og fékk Ísland algjöra draumabyrjun í leiknum.
Þessi draumabyrjun dugði hins vegar skammt. Noregur jafnaði undir lok fyrri hálfleiks og fljótlega í þeim seinni voru þær norsku komnar yfir. Synne Jensen skoraði bæði mörk Noregs.

Lokatölur voru 2-1 fyrir Noreg, en fimm leikmenn voru að stíga sín fyrsta skref og léku sinn fyrsta landsleik fyrir Íslands hönd í dag; Anna Rakel Pétursdóttir, Andrea Mist Pálsdóttir, Guðný Árnadóttir, Hlín Eiríksdóttir og Selma Sól Magnúsdóttir.
Hér að neðan er mark Fanndísar úr leiknum.
Fanndís Friðriksdóttir scores goal for Iceland 1 - 0, Video courtesy of: https://t.co/hIWgWy0PUS, International Women’s Friendly #womensfootball #WSUlive #NORISL pic.twitter.com/aOnG9CHyYa
— WomensSoccerUnited (@WSUasa) January 23, 2018
Sjá einnig:
Freyr: Þær mega gera mistök núna
Sif Atla: Þarf að bjóða pabba út að borða
Athugasemdir