Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 02. febrúar 2018 23:30
Ingólfur Stefánsson
Van Dijk, Clyne og Ings bætast í Meistaradeildarhóp Liverpool
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur bætt þremur leikmönnum við meistaradeildarhóp sinn. Þetta eru þeir Virgil Van Dijk, Nathaniel Clyne og Danny Ings.

Þeir verða því allir löglegir þegar Liverpool mætir Porto í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Van Dijk er enn að reyna að komast í form eftir að hafa spilað lítið á tímabilinu og þá er Nathaniel Clyne enn að jafna sig af meiðslum sem hann varð fyrir í júlí. Hann hefur ekkert komið við sögu með Liverpool á tímabilinu.

Clyne mun ekki taka þátt í viðureignunum gegn Porto en verður líklega orðinn leikhæfur komist Liverpool áfram í 8 liða úrslit.

Phillipe Coutinho sem gekk til liðs við Barcelona í janúar hefur verið fjarlægður úr hópnum. Hann mun ekki vera löglegur með Barcelona í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner