Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. febrúar 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fylkir fékk dómaraverðlaun KSÍ
Dómaraverðlaun KSÍ hlýtur Fylkir fyrir öflugt dómarastarf í gegnum tíðina.
Dómaraverðlaun KSÍ hlýtur Fylkir fyrir öflugt dómarastarf í gegnum tíðina.
Mynd: KSÍ
Ársing KSÍ fór fram í gær á Hilton Reykjavík Nordica í gær. Þar fékk Fylkir dómaraverðlaun fyrir öflugt dómarastarf í gegnum tíðina. Ásamt því að sinna vel málaflokknum í þeim leikjum sem félagið ber ábyrgð á að manna, hafa margir dómarar skilað sér frá Fylki inn í dómarahópinn sem starfar fyrir KSÍ.

Á dögunum stofnaði Fylkir dómararáð sem í sitja núverandi og fyrrverandi landsdómarar.

Markmið og hlutverk dómararáðs er eftirfandi:

*Móta stefnu félagsins í dómaramálum
*Styðja við unga dómara
*Halda utan um hóp efnilegra dómara
*Bæta umhverfi dómara félagsins
*Vera með fræðslu fyrir dómara

„Metnaðarfullt framtak sem önnur félög gætu tekið sér til fyrirmyndar og mun vonandi skila sér í enn öflugri dómurum í framtíðinni," segir í frétt sem birtist á heimasíðu KSÍ.
Athugasemdir
banner
banner
banner