Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 14. febrúar 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Firmino: Ætlum að láta Porto finna fyrir því
Mynd: Getty Images
Roberto Firmino, framherji Liverpool, er gíraður fyrir fyrri leik liðsins gegn Porto í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Liverpool er að fara að spila sinn fyrsta leik í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar síðan árið 2009.

Liðið skoraði 23 mörk í riðlakeppninni en einungis PSG skoraði fleiri mörk þar.

„Ég veit ekki hvort að leikmenn Porto verði hræddir en við ætlum að gera lífið erfitt fyrir þá og láta þá finna fyrir því," sagði Firmino.

Brasilíumaðurinn hefur verið í stuði á tímabilinu en hann skoraði sitt tuttugasta mark í öllum keppnum um síðustu helgi.
Athugasemdir
banner
banner