Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. febrúar 2018 05:55
Gunnar Logi Gylfason
Spánn í dag - Nær Real Madrid að fylgja eftir sigrinum gegn PSG?
Ná leikmenn Real Madrid að fylgja eftir sigri liðsins gegn PSG?
Ná leikmenn Real Madrid að fylgja eftir sigri liðsins gegn PSG?
Mynd: Getty Images
Fjórir leikir eru á dagskrá í La Liga á Spáni í dag.

Dagskráin hefst klukkan 11:00 þegar Real Sociedad fær Levante í heimsókn. Heimamenn sitja í 14.sæti en gestirnir eru í því 17., aðeins tveimur stigum frá fallsæti.

Klukkan 15:15 fær Atletico Madrid, sem situr í öðru sæti deildarinnar, lið Athletic Bilbao, sem situr í 13.sæti, í heimsókn.

Espanyol fær svo Villarreal í heimsókn í leik sem hefst 17:30. Espanyol er í 15.sæti en Villarreal situr í því 6. og er í harðri baráttu um Evrópudeildarsæti.

Klukkan 19:45 hefst leikur Real Betis og Spánarmeistaranna í Real Madrid. Heimamenn eru í 9.sæti. Gestunum hefur ekki gengið vel í deildinni á tímabilinu og sitja í 4.sæti sem telst ekki gott á þeim bænum.

Liðið vann þó 3-1 sigur á Frakklandsmeisturum PSG í vikunni og mæta því fullir sjálfstrausts í þennan leik.

Leikir dagsins:
11:00 Real Sociedad - Levante
15:15 Atletico Madrid - Athletic Bilbao
17:30 Espanyol - Villarreal
19:45 Real Betis - Real Madrid
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
10 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
11 Osasuna 31 11 6 14 36 44 -8 39
12 Las Palmas 31 10 7 14 29 35 -6 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 31 6 13 12 25 38 -13 31
17 Celta 31 6 10 15 33 46 -13 28
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner