Paul Pogba var ekki með Manchester United í dag gegn Huddersfield vegna veikinda.
Á fréttamannafundi fyrir leikinn var Jose Mourinho spurður hvenær Pogba yrði klár til að spila aftur og var knattspyrnustjórinn ómyrkur í máli.
„Ég veit það ekki og til að vera hreinskilinn þá er mér sama, því ég hugsa bara um leikinn. Frá augnablikinu sem ég vissi að Paul gæti ekki spilað...," sagði Portúgalinn og hélt svo áfram, „ég mun hugsa um Paul eftir leikinn," sagði hann við fréttamenn.
Gutted I won’t be at Huddersfield but I need to get better. Come on United 👊🏾 @ManUtd
— Paul Pogba (@paulpogba) February 17, 2018
Athugasemdir