Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 17. febrúar 2018 21:42
Gunnar Logi Gylfason
Ítalía: Óvænt tap Inter
Goran Pandev skoraði gegn sínu fyrrum félagi í kvöld
Goran Pandev skoraði gegn sínu fyrrum félagi í kvöld
Mynd: Getty Images
Öllum leikjum dagsins í Seria A er nú lokið. ChievoVerona sigraði Cagliari 2-1 og komst að hlið þeirra. Markalaust var í hálfleik en Emanuele Giaccherini kom ChievoVerona í 1-0 á 74. mínútu. Roberto Inglese tvöfaldaði forystu heimamanna aðeins tveimur mínútum síðar.

Leonardo Pavoletti minnkaði muninn fyrir gestina sex mínútum síðar en nær komust gestirnir ekki og sigur heimamanna staðreynd.

Í síðasta leik dagsins tók Genoa á móti Inter Milan. Allt leit út fyrir að liðin gengju jöfn til búningsherbergja en Andrea Ranocchia varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í uppbótartíma. Heimamenn fóru því með 1-0 forystu inn í leikhlé.

Eftir stundarfjórðung í seinni hálfleik hafði Makedóninn reyndi Goran Pandev, fyrrum leikmaður Inter Milan, tvöfaldað forystu heimamanna.

Heimamenn sigla lygnan sjó í 12.sæti deildarinnar eftir þennan góða sigur.

Þetta var aðeins þriðja tap gestanna frá Mílanó sem hefðu, með sigri, endurheimt 3.sætið frá Roma. Í staðinn gæti Inter dottið niður í 5.sætið ef Lazio vinnur sinn leik á mánudagskvöldið.

ChievoVerona 2-1 Cagliari
1-0 Emanuele Giaccherini (74')
2-0 Roberto Inglese (76')
2-1 Leonardo Pavoletti (82')

Genoa 2-0 Inter
1-0 Andrea Ranocchia (45')
2-0 Goran Pandev (59')

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 32 16 7 9 57 38 +19 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner