Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   sun 18. febrúar 2018 08:30
Gunnar Logi Gylfason
Leikmaður Bayer Leverkusen gæti spilað fyrir England
Leon Bailey
Leon Bailey
Mynd: Getty Images
Leon Bailey, leikmaður Bayer Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni, gæti spilað með enska landsliðinu á HM í sumar eftir að upp komst að hann eigi ömmu og afa sem eru með breskan ríkisborgararétt.

Hann gæti að vísu spilað fyrir fjögur landslið. Bailey er fæddur í Jamaíka og hefur spilað fyrir u-23 ára landslið þeirra. Einnig getur hann spilað fyrir landslið Belgíu og Möltu.

Bailey yrði ekki fyrsti leikmaðurinn sem á ættir að rekja til Jamaíka til að spila fyrir landslið Englands ef af yrði. Leikmenn á borð við John Barnes og Raheem Sterling fæddust báðir í Jamaíka.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner