Borussia M'Gladbach 0 - 1 Borussia Dortmund
0-1 Marco Reus ('32)
0-1 Marco Reus ('32)
Marco Reus gerði sitt fyrsta mark fyrir Borussia Dortmund síðan í maí er liðið hafði betur í hörkuslag gegn Borussia Mönchengladbach.
Heimamenn í Gladbach voru mikið betri allan leikinn og hreint út sagt ótrúlegt að þeim hafi ekki tekist að skora í leiknum. Þeir áttu 28 skot gegn 7 frá gestunum.
Reus gerði eina mark leiksins á 32. mínútu en hann spilaði sinn fyrsta leik eftir slæm meiðsli fyrir viku síðan.
Þetta er þriðji leikur Reus í röð og ljóst að gengi Dortmund getur snarbatnað ef hann fer almennilega í gang. Reus skoraði sjö mörk í síðustu átta leikjum síðasta tímabils.
Athugasemdir