Paul Pogba átti að spila gegn Huddersfield í enska bikarnum á laugardaginn en missti af leiknum vegna veikinda.
Jose Mourinho segist ekki vita hvort Pogba verði búinn að ná sér fyrir viðureign Manchester United og Sevilla í Meistaradeildinni næsta miðvikudag.
Jose Mourinho segist ekki vita hvort Pogba verði búinn að ná sér fyrir viðureign Manchester United og Sevilla í Meistaradeildinni næsta miðvikudag.
„Ég veit ekki hvort hann verði klár í slaginn fyrir miðvikudaginn eða ekki. Það er stórt spurningamerki," sagði Mourinho.
„Það var ekkert að honum degi fyrir leik, hann hringdi sig inn veikan á leikdegi og þá þurfti ég að búa til nýtt lið fyrir leikinn.
„Nú þurfum við að komast að því hvort hann verði tilbúinn til að hjálpa liðinu á miðvikudaginn eða ekki."
Athugasemdir