Varnarmaðurinn Eliaquim Mangala verður mögulega ekki meira með Everton á þessu tímabili.
Mangala kom til Everton á láni frá Manchester City á lokadegi félagaskiptagluggans í janúar.
Frakkinn fór meiddur af velli gegn Crystal Palace um þarsíðustu helgi og óttast er að hann hafi skaddað liðbönd í hné.
Mangala fer í frekari skoðanir á næstu dögum en tímabilið er líklega búið hjá honum.

„Þetta líta út fyrir að vera langtíma meiðsli sem er mikil synd fyrir hann og okkar því að hann var mjög góð viðbót við hópinn okkar," sagði Sam Allardyce stjóri Everton.
Athugasemdir