Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 19. febrúar 2018 16:30
Magnús Már Einarsson
Gylfi: Stjórinn er að ná því besta úr mér
Gylfi fagnar marki.
Gylfi fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson segist vera ánægður með spilamennsku sína eftir að Sam Allardyce tók við Everton af Ronald Koeman í október. Gylfi skoraði sitt sjötta mark á tímabilinu í síðasta leik gegn Crystal Palace en hann hefur einnig lagt upp fimm mörk í vetur.

„Ég hef verið að skora meira og leggja meira upp. Það er alltaf gott. Ég tel að stjórinn sé að ná því besta úr mér. Aðalmálið er samt að við erum að spila og verjast betur sem lið," sagði Gylfi.

„Frammistaða okkar hefur verið mun jákvæðari ef við miðum við byrjun tímabils og það sést í stigafjöldanum sem við höfum ná í að undanförnu."

„Við erum í góðri stöðu miðað við það hvar við vorum fyrir nokkrum mánuðum. Við eigum mikilvæga leiki framundan þar sem við þurfum að standa okkur vel og klára tímabilið af krafti."


Vill bæta útivallarárangurinn
Everton er í 9. sæti í dag en einungis tvö stig eru í Burnley í 7. sætinu. Lið Everton hefur verið í Dubai í æfingabúðum undanfarin og Gylfi vonast til að sú ferð hjálpi til í næstu leikjum.

„Það hefur verið gott að komast í burtu og æfa í sólinni. Þetta hefur verið erfitt en þetta hjálpar okkur," sagði Gylfi.

„Við þurfum að halda áfram. Næstu fimm leikir eru mjög mikilvægir fyrir okkur. Sérstaklega heimaleikirnir. Ef við höldum áfram að spila eins og við höfum gert í síðustu leikjum á Goodison þá kemur það okkur ofar," sagði Gylfi en Everton hefur náð í 17 stig í síðustu átta leikjum á heimavelli.

„Við þurfum að bæta okkur á útivelli og ef við getum byrjað að ná í stig úti líka þá getum við vonandi endað tímabilið vel."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner