Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 20. febrúar 2018 13:00
Magnús Már Einarsson
Pogba, Zlatan, Herrera og Rashford æfðu allir
Pogba æfði í dag.
Pogba æfði í dag.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, Zlatan Ibrahimovic, Ander Herrera og Marcus Rashford æfðu allir með Manchester United í dag fyrir leikinn gegn Sevilla í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Pogba var ekki með United í 2-0 sigrinum á Huddersfield á laugardag vegna veikinda en hann er klár í slaginn.

Herrera og Rashford voru einnig fjarri góðu gamni vegna meiðsla á laugardaginn en þeir æfðu í dag.

Zlatan hefur ekkert spilað síðan á annan í jólum vegna meiðsla á hné en hann er búinn að jafna sig af þeim meiðslum.
Athugasemdir
banner
banner