Manchester United sýndi ekki sínar bestu hliðar sóknarlega þegar liðið mætti Sevilla í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. United átti aðeins eitt skot á markið.
„Manchester United liðin sem ég spilaði við reyndu að sækja á þig," segir Ian Wright, fyrrum sóknarmaður Arsenal, en hann var á vaktinni fyrir BBC í kringum leikinn í kvöld.
„Manchester United liðin sem ég spilaði við reyndu að sækja á þig," segir Ian Wright, fyrrum sóknarmaður Arsenal, en hann var á vaktinni fyrir BBC í kringum leikinn í kvöld.
Wright segir að það sé ótrúlegt að liðið geti ekki sótt betur með þessa leikmenn innanborðs.
„Ef þú lítur á leikmennina sem liðið hefur. Rashford, Martial, Sanchez, Lukaku með aðstoð frá Pogba - myndi það ekki hræða þig? United á að gera betur með þessa leikmenn."
„Ég er undrandi á þessum gelda fótbolta. Ef ég væri stuðningsmaður United þá væri ég fullur viðbjóðs."
Athugasemdir