Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 22. febrúar 2018 21:10
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Víkingur rétt marði Njarðvík
Halldór Jón skoraði sigurmarkið.
Halldór Jón skoraði sigurmarkið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík 2 - 3 Víkingur R.
0-1 Markaskorara vantar ('13, sjálfsmark)
0-2 Erlingur Agnarsson ('15)
1-2 Atli Freyr Ottesen Pálsson ('65)
2-2 Neil Slooves ('75)
2-3 Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('90)

Víkingur R. rétt marði Njarðvíkinga er liðin mættust í A-riðli Lengjubikarsins í dag.

Víkingar komust tveimur mörkum yfir á fyrsta stundarfjórðunginum en heimamenn jöfnuðu í síðari hálfleik með mörkum frá Atla Frey Ottesen Pálssyni og Neil Slooves.

Halldór Jón Sigurður Þórðarson gerði sigurmark Víkinga á 90. mínútu og stal þannig sigrinum á lokamínútunum.

Bæði lið eru með þrjú stig. Víkingar eru búnir með tvo leiki en Njarðvíkingar þrjá.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner