Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. febrúar 2018 05:55
Ingólfur Stefánsson
Ítalía í dag - Inter fær botnliðið í heimsókn
Inter eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti
Inter eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fara fram í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Bologna og Genoa mætast í fyrri leik dagsins.

Liðin eru jöfn að stigum í 12. og 13. sæti deildarinnar með 30 stig. Genoa vann góðan 2-0 sigur á Inter um síðustu helgi.

Inter vonast til að komast aftur á sigurbraut þegar þeir taka á móti botnliði Benevento í seinni leik dagsins.

Benevento vann góðan sigur á Crotone um síðustu helgi en eru enn 11 stigum frá öruggu sæti.

Leikir dagsins
17:00 Bologna - Genoa
19:45 Inter - Benevento (SportTV)
Athugasemdir
banner
banner
banner