Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 23. febrúar 2018 21:23
Ingólfur Stefánsson
Þýskaland: Mainz og Wolfsburg skildu jöfn
Mynd: Getty Images
Mainz 05 1-1 Wolfsburg
0-1 Josip Brekalo (6')
1-1 Yoshinori Muti (44')

Mainz og Wolfsburg mættust í fallbaráttuslag í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Fyrir leikinn voru Mainz með jafnmörg stig og Werder Bremen í 15. og 16. sæti deildarinnar og Wolfsburg með einu stigi meira í 14. sæti.

Josip Brekalo kom Wolfsburg yfir strax á 6. mínútu eftir sendingu frá William.

Wolfsburg voru nálægt því að tvöfalda forskot sitt á 11. mínútu þegar skalli Joshua Guilavogui endaði í þverslánni. Mainz fengu svo gullið tækifæri til þess að jafna metin á 26. mínútu en Danny Latza hitti ekki á markið úr dauðafæri.

Leikurinn var mjög fjörugur og hefðu bæði lið getað verið búin að skora áður en Yoshinori Muto jafnaði metinn í lok fyrri hálfleiks.

Síðari hálfleikur var ekki eins fjörugur en ekkert mark var skorað og lauk leiknum með 1-1 jafntefli.
Athugasemdir
banner