Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 23. febrúar 2018 23:30
Ingólfur Stefánsson
Ramsey og Özil í kappi við tímann
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger þjálfari Arsenal vonast til þess að Mezut Özil og Aaron Ramsey verði klárir fyrir úrslitaleikinn í Caraboa bikarnum gegn Manchester City á sunnudag.

Özil missti af tapinu gegn Östersund í Evrópudeildinni á fimmtudag vegna veikinda.

Ramsey hefur verið að glíma við meiðsli í nára og missti af nágrannaslagnum gegn Tottenham og hefur ekki verið með liðinu síðan.

Özil æfði með liðinu í dag og Wenger hefur trú á því að hann verði klár fyrir leikinn á sunnudag.

„Þú vilt hafa alla þína bestu leikmenn og Özil er einn af þeim. Ég þarf að taka ákvörðun með Ramsey á morgun en við munum taka stöðuna á honum þá."
Athugasemdir
banner
banner
banner