Kári 7 - 3 Augnablik
Mörk Kára: Marinó Hilmar Ásgeirsson 2, Ragnar Már Lárusson, Sindri Snæfells Kristinsson, Róbert Ísak Erlingsson, Hlynur Sævar Jónsson, Jón Vilhelm Ákason.
Mörk Augnabliks: Hreinn Bergs 2, Ágúst Örn Arnarson.

Kári, sem lenti í öðru sæti í C-deild Fótbolta.net mótsins, byrjar vel í B-deild Lengjubukarsins, með sigri á Augnabliki.
Leikurinn byrjaði frábærlega og eftir sjö mínútur var staðan 1-1 en eftir það tók Kári völdin á vellinum og var 4-1 yfir í hálfleik. Eftir tíu mínútur í seinni hálfleiknum var staðan 6-1 fyrir Kára!
Jón Vilhelm Ákason, fyrrum leikmaður Vals og ÍA, kom Kára í 7-1 áður en Augnablik klóraði í bakkann með tveimur mörkum.
Þetta var fyrsti leikur beggja liða en þau eru í Riðli 1 í B-deildinni. Kári er í 2. deild í sumar á meðan Augnablik er í 3. deild.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir