Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 24. febrúar 2018 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Sjötti sigurinn í röð hjá Söru Björk
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Wolfsburg 2 - 0 SC Sand
1-0 Pernille Mosegaard-Harder ('38)
2-0 Zsanett Jakabfi ('81)

Landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn er Wolfsburg hafði betur gegn SC Sand í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Pernille Mosegaard-Harder kom Wolfsburg yfir stuttu fyrir leikhlé og þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum bætti Zsanett Jakabfi við marki fyrir heimakonur í Wolfsburg.

Wolfsburg, sem varð tvöfaldur meistari í Þýskalandi á síðustu leiktíð, situr á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með 34 stig, fimm stigum meira en næsta lið. Sara Björk og stöllur hennar eru á miklu skriði og hafa unnið sex deildarleiki í röð.
Athugasemdir
banner