Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. febrúar 2018 17:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Búlgaría: Obertan með tvö í sigri Hólmars og félaga
Hólmar Örn Eyjólfsson.
Hólmar Örn Eyjólfsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Septemvri Sofia 1 - 4 Levski Sofia
0-1 Stanislav Kostov ('29)
0-2 Stanislav Kostov ('57)
0-3 Gabriel Obertan ('66)
1-3 Antoni Ivanov ('84, víti)
1-4 Gabriel Obertan ('90)

Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar hans í Levski Sofia fara vel af stað eftir vetrarfrí í búlgörsku úrvalsdeildinni. Í dag bar liðið sigur úr býtum gegn nágrannaliðinu Septemvri Sofia.

Stanislav Kostov skoraði fyrstu tvö mörkin og kom Levski í 2-0.

Gabriel Obertan, fyrrum leikmaður Manchester United, kom Levski í 3-0 áður en Septemvri Sofia minnkaði muninn.

Obertan skoraði síðan annað mark sitt og fjórða mark Levski í uppbótartímanum og lokatölurnar 4-0.

Hólmar spilaði líkt og venjulega allan leikinn fyrir Levski sem er í þriðja sæti búlgörsku deildarinnar, sex stgium frá toppnum. Í síðustu umferð vann Levski 1-0 sigur á Botev Plovdiv, en það var fyrsti leikur liðsins eftir langt vetrarfrí. Liðið fer því vel af stað eftir vetrarfrí.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner