Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 24. febrúar 2018 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sjáðu markið: Jón Daði á skotskónum gegn Derby
Mynd: Getty Images
Jón Daði Böðvarsson var á skotskónum í dag þegar lið hans Reading mætti Derby.

Hann sá til þess að Reading fékk stig út úr leiknum þegar hann jafnaði metin þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum en leikurinn endaði með 3-3 jafntefli.

Mark hans í dag var sjötta markið hans á tímabilinu í Championship deildinni, en í heildina hefur hann skorað níu mörk á tímabilinu. Hann skoraði þrennu í janúar í enska bikarnum.

Hér að neðan má sjá markið sem þessi 25 ára gamli Selfyssingur skoraði í dag.




Athugasemdir
banner
banner