Sadio Mane lék í 87. mínútur þegar Liverpool sigraði West Ham örugglega á Anfield í gær, 4-1.
Mane ásamt Salah og Firmino byrjuðu sem fremstu menn Liverpool í gær, Mané talaði um í viðtali eftir leikinn að þeir félagarnir væru heppnu strákarnir í liðinu.
„Við spiluðum mjög vel frá byrjun, við skoruðum fjögur mörk og sköpuðum okkur mikið af færum."
„Þrír fremstu leikmennirnnir í þessu liði eru heppnu strákarnir í liðinu, við höfum svo góða liðsfélaga sem leggja upp mörk fyrir okkur og spila vel fyrir aftan okkur," sagði Mane.
Athugasemdir