Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. febrúar 2018 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Lewis Dunk jafnaði met í gær sem Martin Skrtel átti einn
Lewis Dunk er varnarmaður Brighton.
Lewis Dunk er varnarmaður Brighton.
Mynd: Getty Images
Lewis Dunk varnarmaður Brighton jafnaði úrvalsdeildarmet í gær sem hann er líklega ekkert mjög stoltur af.

Dunk hefur verið duglegur við að skora sjálfsmörk á tímabilinu og enn eitt sjálfsmarkið skoraði hann í gær þegar Brighton sigraði Swansea, 4-1.

Sjálfsmarkið í gær var það fjórða hjá honum á tímabilinu en aðeins Martin Skrtel hefur skorað jafn mörg sjálfsmörk á einu tímabili og Dunk en Skrtel gerði það þegar hann lék með Liverpool tímabilið 2013-2014.



Athugasemdir
banner
banner
banner