Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. febrúar 2018 18:10
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Ólafsvík vann - Keflavík með stórsigur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri Þór Guðmundsson gerði tvennu er Keflavík rúllaði yfir Leikni R. í Egilshöllinni í dag.

Liðin mættust í Lengjubikarnum og eru Leiknismenn stigalausir á botni riðils 3 í A-deildinni eftir tvo leiki.

Keflavík er með fjögur stig eftir þrjár umferðir þar sem liðið náði góðu jafntefli við Fjölni eftir naumt tap gegn Stjörnunni.

Víkingur Ólafsvík hafði þá betur gegn Haukum og eru bæði lið með þrjú stig.

Þetta var fyrsti leikur Ólafsvíkinga en Haukar töpuðu í fyrstu tveimur umferðunum.

Haukar 2 - 3 Víkingur Ó.
0-1 Gonzalo Zamorano Leon ('55)
1-1 Þórður Jón Jóhannesson ('57)
1-2 Gonzalo Zamorano Leon ('62)
2-2 Þórður Jón Jóhannesson ('74)
2-3 Sanjin Horoz ('82)

Leiknir R. 0 - 4 Keflavík
0-1 Marko Nikolic ('7)
0-2 Jeppe Hansen ('12, víti)
0-3 Sindri Þór Guðmundsson ('23)
0-4 Sindri Þór Guðmundsson ('61)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner