Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 25. febrúar 2018 18:51
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Völsungur rúllaði yfir KF
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Völsungur 5 - 0 KF
1-0 Aðalsteinn Jóhann Friðriksson ('11)
2-0 Elvar Baldvinsson ('46)
3-0 Rúnar Þór Brynjarsson ('58)
4-0 Ásgeir Kristjánsson ('59)
5-0 Bjarki Baldvinsson ('68)

Völsungur og KF mættust í fyrstu umferð riðils 4 í b-deild Lengjubikarsins.

Liðin mættust í Boganum og komst Völsungur yfir snemma leiks og var einu marki yfir í hálfleik.

Elvar Baldvinsson tvöfaldaði forystu Völsungs á fyrstu mínútu síðari hálfleiks og bættu Húsvíkingar þremur mörkum við fyrir leikslok.

Völsungur á næst leik við Fjarðabyggð/Hugin á laugardaginn á meðan KF mætir Einherja.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner