Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. mars 2018 13:10
Elvar Geir Magnússon
Gæti lið Arsenal litið svona út á næsta tímabili?
Alvaro Odriozola.
Alvaro Odriozola.
Mynd: Getty Images
Verða miklar breytingar á leikmannahópi Arsenal í sumar? Tímabilið hefur verið erfitt hjá liðinu og mikil umræða um það hvort Arsene Wenger gæti verið á förum. Innan hópsins er hnignun Per Cech og samningamál Jack Wilshere meðal þess sem er í umræðunni.

Arsenal vill fá markvörð, miðvörð og varnarmiðjumann en gætu enn fleiri komið? Mirror velti því fyrir sér til gamans og setti saman mögulegt byrjunarlið Arsenal á næstu leiktíð.

Leikmenn sem gætu komið:

Bernd Leno - Sjá frétt

Alvaro Odriozola - Fer Hector Bellerín? Odriozola hefur leikið vel í hægri bakverði hjá Real Sociedad og er keppinautur Bellerín í spænska landsliðinu.

Jonny Evans - Orðaður við Arsenal í síðustu gluggum og félagið gæti reynt aftur við hann næsta sumar. Stefan de Vrij er annar möguleiki.

Abdoulaye Doucoure - Gæti komið með nauðsylegan kraft á miðjuna hjá Arsenal en hann hefur spilað fantavel með Watford.

Malcom - Framherji Bordeaux var orðaður bæði við Tottenham og Arsenal í janúarglugganum en var áfram hjá Bordeaux.

Sjá einnig:
Jardim og Arteta sagðir á blaði hjá Arsenal

Hér er mögulegt lið sem Mirror setti saman:
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner