Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 07. mars 2018 22:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chiellini skaut föstum skotum að Tottenham
,,Þetta er saga Tottenham"
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Giorgio Chiellini átti skínandi leik þegar Juventus lagði Tottenham að velli í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Chiellini segir að Juventus hafi vitað um veikleika Tottenham og nýtt sér þá til hins ýtrasta.

„Þetta er magnað kvöld fyrir okkur. Þetta var mjög erfitt en við vissum það fyrir leikinn og líka fyrir síðasta leik. En höfðum trúna og við höfðum trú á því að við gætum unnið," sagði Chiellini."

„Þetta er saga Tottenham, þeir skapa alltaf fullt af færum til að skora en það vantar alltaf eitthvað hjá þeim."

„Við trúum á söguna, við sáum það í gær hjá París og Real, sagan er mikilvæg, reynslan er mikilvæg."

Chiellini tileinkaði félaga sínum Davide Astori sigurinn. Astori, sem var fyrirliði Fiorentina, lést aðfaranótt sunudags. Hann var 31 árs.





Athugasemdir
banner
banner