Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 13. mars 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Góðar fréttir af syni David Silva
Mynd: Getty Images
David Silva, miðjumaður Manchester City, segir að sonur sinn sé á góðri leið en hann fæddist fyrir tímann í desember síðastliðnum.

Hinn 32 ára gamli Silva hefur oft fengið frí á æfingum hjá City að undanförnu til að fara til fjölskyldu sinnar á Spáni.

Silva skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri Manchester City á Stoke í gærkvöldi og eftir leikinn tjáði hann sig um stöðuna á syni sínum.

„Þegar ég spila fótbolta þá gleymi ég öllu. Það er gott fyrir mig að spila," sagði Silva eftir leikinn í gær.

„Það eru mjög erfiðir tímar í einkalífi mínu í augnablikinu en sonur minn er að berjast. Ég er mjög ánægður því hann er að verða sterkari og honum líður betur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner