Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 14. mars 2018 10:15
Magnús Már Einarsson
Matic: Engar afsakanir
Nemanja Matic.
Nemanja Matic.
Mynd: Getty Images
Nemanja Matic, miðjumaður Manchester United, segir að Sevilla hafi verðskuldað að fara áfram eftir viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Sevilla vann 2-1 á Old Trafford í gær eftir markalaust jafntefli í fyrri leiknum á Spáni.

„Auðvitað er erfitt að taka þessu. Við erum ekki ánægðir því við erum úr leik í Meistaradeildinni. Svona er fótboltinn. Við þurfum að taka þessu og einbeita okkur að næsta leik sem er mikilvægur leikur í enska bikarnum (gegn Brighton)," sagði Matic eftir leik.

„Það eru engar afsakanir í boði. Við vorum að spila stórleik, eins og þið vitið, gegn Liverpool og við unnum hann."

„Við komum með mikið sjálfstraust inn í þennan leik en í dag (í gær) spiluðu þeir betur en við og verðskulduðu sigurinn."

Athugasemdir
banner
banner
banner