Jamie Carragher hefur enn á ný beðist afsökunar á að hafa hrækt á fjölskyldubíl um síðustu helgi. Tekið var upp á farsíma þegar Carragher hrækti inn um bílrúðu á fjórtán ára stelpu og föður hennar. Faðirinn hafði verið að hæðast að Carragher eftir 2-1 sigur Manchester United gegn Liverpool.
Carragher hefur starfað sem sérfræðingur hjá Sky Sports en búið er að setja hann í leyfi frá störfum út tímabilið.
Carragher hefur starfað sem sérfræðingur hjá Sky Sports en búið er að setja hann í leyfi frá störfum út tímabilið.
Talsmaður Sky Sports segir að Carragher hafi tekið fulla ábyrgð á gjörðun sínum og að fyrirtækið myndi tryggja það að hann fengi þá hjálp sem hann þarf til að tryggja að svona gerist ekki aftur.
Talið er líklegt að Sky sendi Carragher á reiðistjórnunarnámskeið en framhald hans verður skoðað fyrir næsta tímabil.
„Ég hef nú þegar sagt að ég tek ábyrgð á því sem gerðist. Þetta var brjálæðiskast í augnablik og ég ætla að tala við viðeigandi aðila til að passa upp á að þetta gerist aldrei aftur. Ég bið alla afsökunar," sagði Carragher á Twitter í dag.
I have already said I take responsibility for what happened. It was a moment of madness and I’m going to speak to the relevant people to ensure something like this never happens again. Again apologies all round. https://t.co/DSg6cQLQIW
— Jamie Carragher (@Carra23) March 14, 2018
Athugasemdir