Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 14. mars 2018 18:15
Magnús Már Einarsson
Mónika Hlíf í KR (Staðfest)
Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir.
Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við KR fyrir Pepsi-deildina í sumar.

Mónika kemur til liðs við KR frá ÍR en hún ólst upp í Stjörnunni.

Hin 19 ára gamla Monika spilaði alla leiki ÍR í 1. deildinni í fyrra og skoraði þrjú mörk.

Mónika hefur æft og spilað með KR í vetur en hún skoraði í 3-1 tapi gegn Val í úrslitum Reykjavíkurmótsins í síðasta mánuði.

KR endaði í 8. sæti í Pepsi-deild kvenna í fyrra en Bojana Besic tók við þjálfun liðsins af Eddu Garðarsdóttur síðastliðið haust.

Athugasemdir
banner
banner
banner